Fara í aðalinnihald

Leiðinilegasti dagur ársins?

Fór á áhugaverðan fyrirlestur sem foreldrafélög þriggja leikskóla héldu í kvöld um úlfatímann. Á morgun er líklega leiðinlegasti dagur ársins hjá mér, því annað kvöld ætlum við hjónin að klára skattframtalið sem sem við fengum frestað fyrir um viku síðan, en núna er fresturinn að renna út og því eins gott að klára dæmið. Á morgun er ég svo einnig að fara til tannlæknis! Gæti ekki verið meira spennandi dagur.

Minni alla á að það er fyrsti apríl á morgun og ég ætla sko að hringja í alla sem ég þekki og plata þá uppúr skónum. Kannski að dagurinn verði bara skemmtilegur?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Mikið áttu gott að hafa lokið leiðinlegasta degi ársins á fyrsta ársfjórðungnum (þrátt fyrir að tæknilega séð sé þetta fyrsti dagur annars ársfjórðungs, blahhhh) :-)

Bergrún Pollýanna (svei mér ef mér líkar ekki betur við Bergrún Arna)
LBK sagði…
Já, púff á ennþá eftir skattframtalið. Er farinn að halda að þetta blögg sé ákveðin "þerapía" hjá mér þar sem ég fæ mig til að sjá jákvæðuhliðarnar á hlutunum.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?