Fara í aðalinnihald

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Ummæli

Nafnlaus sagði…
þegar ég kem inn á síðuna þína kemur upp hjá vírusforritinu að það sé spyware hjá þér hérna sem sé flokkaður sem hættulegur. bara að láta vita :)
jana
LBK sagði…
Takk fyrir að láta vita en þetta er örugglega bara teljarinn minn sem er stór hættulegur!
Annað er ekki á síðunni nema það sé tengt blogspot.

Hefur einhver annar lent í þessu?
Lilja Bjarklind
Nafnlaus sagði…
þetta er samt bara nýtilkomið, seinnustu viku eða svo, kom ekki áður.
LBK sagði…
Ég hef ekki breytt neinu þannig að annað hvort er þetta hlekkur, blogspot eða teljarinn. Teljarinn er auðvitað spyware. Hefur einhver annar orðið var við þetta?
LBK sagði…
Hef fengið fleiri athugasemdir. Hvaða vírusvarnarforrit ertu með Jana?

Kveðja, Lilja Bjarklind
Nafnlaus sagði…
trend micro pc-cilin, hélt alltaf að það væri alveg fínt en var svo að lenda í vesseni með tölvuna og fékk þá að vita að það væri svaka mikil vandræði alltaf með það forrit og netið útaf því :) þanng kannski bara útaf því.
jana
Nafnlaus sagði…
en já gleymdi að þetta er hætt að koma núna

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?