Fara í aðalinnihald

Langur laugardagur

Það var nóg að gera í dag sem byrjaði með því að eiginmaðurinn þurfti að fara á slysó í dag til að láta líta á augað á sér og það tók einungis rúmlega tvo tíma og það kallar maður gott. Er maður þá orðinn samdauna heilbrigðiskerfinu ef manni finnst það vera stutt að bíða í minna en tvo tíma eftir "bráðri" læknisaðstoð. Einkasonurinn var viss um hvað læknirinn sagði við pabba sinn og fræddi hann um það seinna um daginn, þó svo að við mæðiginin biðum heima þegar eiginmaðurinn fór uppá slysó.

Við fórum á einn vinsælasta matsölustað höfuðborgarsvæðisins í hádeginu í dag og vorum svo heppin að mæta rétt um tólf því þá var næstum tómt en þegar við fórum rúmlega hálftíma seinna voru um 30 manns í biðröð og það skemmir ekki fyrir að þetta er einnig einn ódýrasti veitingarstaðurinn. Við einkasonurinn skiptum með okkur einum rétti. Hann fékk níu kjötbollur og ég fjórar. Við kíktum svo á búðina sem er í næsta nágrenni við þennan fræga veitingarstað, þ.e. IKEA. Eftir það kíkti ég í þrjár aðrar húsganaverslanir í Kópavoginum en einkasonurinn og eiginmaðurinn dormuðu úti í bíl á meðan.

Seinna um daginn fengum við pönnsur hjá mákonu minni og í kvöld buðum við foreldrum mínum í heimagerða pizzu. Einkasonurinn var nú ekkert á því að mamma mín ætti eitthvað í mér, sagði að hún gæti bara átt afa (pabba minn) þar sem hann ætti mig. Jæja, núna ætla ég að leggjast fyrir framan sjónvarpið sem er að sjálfsöguð með hræðilega dagskrá eins og vera ber á laugardagskvöldi og slappa aðeins af.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Gleðilegt sumar

Já, þá er sumarið víst komið og tja jafnvel farið þetta árið. í gær var sumardagurinn fyrsti og aldrei man ég eftir að það haf verið janf gott verður á sumardagin fyrsta og í gær, algjör bongóblíða. Ingólfur bróðir átti afmæli í gær, 22. apríl, þannig að við fórum í smá kaffiboð til hans og Ingu og fengum þessa fínu súkkulaðitertu með jarðaberjum og rjóma, namm, namm og takk fyrir mig. En við stóðum í stórræðum í gær, þó aðallega Siggi en ég sá um að stjórna. Siggi málaði nefnilega stofuna hjá okkur. Reyndar náði hann bara að mála þrjá veggi en þá kláraðist málingin. Að sjálfsögðu er núna miklu bjartara og fallegra inní litlu stofunni okkar og við skiljum bara ekki af hverju við vorum ekki búin að gera þetta miklu fyrr. Við héldum svo uppá sumarið með því að skella okkur á “stælinn” (þýðing: American Style) um kvöldið. Ekki leiðinlegur dagur það. Í dag er svo hálfgerður mánudagur en í raun er föstudagur. Mjög svo skemmtilegt því á morgun er nefnilega komin helgi aftur. Mætt...

Á bílnum í vinnuna

Siggi hjólaði í vinnuna í dag í fyrsta skipti þetta árið. Í staðinn fékk ég að fara á bílnum í vinnuna og nýtti ég mér tækifærið og svaf aðeins lengur, en mætti þó í vinnuna 20 mínútum yfir átta. Oh, það var næs. Hinsvegar er verið að yfirfara holræsin í götunni minni og ekkert vatn í allan dag frá kl. 7:45 og fram á kvöld. Þegar ég var að fara á bílnum í vinnuna voru því einhverjir vinnubílar að skoða holræsin og ég eiginlega föst inní götunni. Það endaði með því að ég gerðist lögbrjótur og keyrði þar sem ég má ekki keyra, segi ekki meir ef löggan les reglulega síðuna! Í gær fór ég í vikulegan göngutúr með Sigurborgu frænku og í þetta skiptið kom Hulda frænka með okkur. Við löbbuðum um laugardalinn og hverfið þar í kring, í yndislegu vorveðri. Svona á lífið að vera.

Hakk og spagettí

Hakk og spagetti er á boðstólnum í þriðja skiptið þessa vikuna. Fengum það fyrst á sunnudaginn og svo aftur á þriðjudaginn, vorum boðin í mat í bæði skiptin. En þar sem þetta er reyndar uppáhaldið hjá feðgunum þá er það bara mjög gott mál. Ef einhverjum öðrum langar að bjóða okkur í hakk og spagetti, þá endilega bjóða sig fram. Í dag ákváðum við að elda í þriðja skiptið hakk og spagettí en það er reyndar bara handa einkasyninum (hann bað sérstaklega um það) en við ætlum að búa til eitthvað annað úr hakkinu okkar, ætli það verði ekki bara buff. Í þessum skrifuðu orðum eru feðgarnir í eldhúsinu að elda. Annar að elda og hinn að hjálpa til, einkasonurinn er nefnilega nokkuð viss um að það gangi ekki að elda nema hann hjálpi til.