Fara í aðalinnihald

Glugginn minn

Fyrir utan gluggann á skrifstofunni minni í vinnunni er eitt helsta bílaþvottaplan bæjarins, um leið og hlýnar fyllist það af bíleigendum og bílum sem eru þrifnir hátt og lágt. Þar sem bílarnir og eigendur þeirra mæta þegar veðrið batnar hef ég farið að samsvara fjölgun á bílaþvottaplaninu með batnandi veðri og hækkandi sól. Í gær og einnig seinni partinn í dag var planið einmitt fullt af bílum og ég er ekki frá því að það hafi komið smá vorhugur í mig.

Ég fór einmitt að spá í því í gær að þar fyrir utan er þverskurður af þjóðfélaginu. Fínir karlar á stórum bílum, heimavinnandi húsmæður á jeppum, mæður með krakka á stationbílum, háskólanemar á eldri bílum, tælendingar á japönskum bílum sem er búið að stækka græjurnar, gamlir leigubílstjórar, bæjarstarfsmenn á pallbíl með restina af moldinni og eitt sumarið var þar arabi mættur með arabíska teppið sitt og var að þrífa það. Kannski vantar einhverja eins og þreytta heimilisfeður og Pólverja en ég sé auðvitað bara þá sem hafa tíma til að þrífa bílana sína á vinnutíma, þ.e. frá 8-16 virka daga. Eftir þann tíma gæti verið að það væri allt annað þjóðfélag fyrir utan gluggann minn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...