Fara í aðalinnihald

Gleðilegt sumar

Já, þá er sumarið víst komið og tja jafnvel farið þetta árið. í gær var sumardagurinn fyrsti og aldrei man ég eftir að það haf verið janf gott verður á sumardagin fyrsta og í gær, algjör bongóblíða. Ingólfur bróðir átti afmæli í gær, 22. apríl, þannig að við fórum í smá kaffiboð til hans og Ingu og fengum þessa fínu súkkulaðitertu með jarðaberjum og rjóma, namm, namm og takk fyrir mig.

En við stóðum í stórræðum í gær, þó aðallega Siggi en ég sá um að stjórna. Siggi málaði nefnilega stofuna hjá okkur. Reyndar náði hann bara að mála þrjá veggi en þá kláraðist málingin. Að sjálfsögðu er núna miklu bjartara og fallegra inní litlu stofunni okkar og við skiljum bara ekki af hverju við vorum ekki búin að gera þetta miklu fyrr.

Við héldum svo uppá sumarið með því að skella okkur á “stælinn” (þýðing: American Style) um kvöldið. Ekki leiðinlegur dagur það.

Í dag er svo hálfgerður mánudagur en í raun er föstudagur. Mjög svo skemmtilegt því á morgun er nefnilega komin helgi aftur. Mætti sko bara vera meira af þessum fimmtudagsfrídögum. Ekki hætta með þá eða færa á föstudaga eins og margir hafa verið að ræðan núna síðustu daga.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...