Fara í aðalinnihald

Ljós og myrkur

Nú fer í hönd dimmasti mánuður ársins; myrkur þegar maður fer í vinnuna og myrkur þegar maður kemur heim. Þegar rigningin er eins og í dag þá er eins og dagurinn fari framhjá manni eða komi bara alls ekki neitt.
En sem betur fer eru jólin að koma og þá fá flest allir Íslendingar ljósaseríuæði. Blokkinn okkar er eins og jólatré, algjörlega ósamstæð og fullt af hallærislegum jólaljósum í gluggunum. En samt yndislega jólaleg og kemur manni alltaf í gott skap á morgnanna að sjá að fleiri hafi komið upp jólaljósum frá því daginn áður. Þetta birtir heldur betur upp skammdegið og mér finnst frábært hvað allir eru duglegir að skreyta hjá sér og hvað fólk hengir upp jólaljósin á mismunandi hátt. Bíð spennt eftir morgundeginum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
nei sko mín barasta með bloggsíðu og ég vissi ekki neitt :( jæja besta að feivoritmerkja hana og kíkja reglulega. Með jólaljósin, hafið þið bæst í jólaljósafólkahópinn?
góðar stundir
Nafnlaus sagði…
já var að komast að því að þú værir með bloggarasíðu - velkomin í þann hóp!!! Hér verður kíkt við reglulega og fylgst með hvað hólmafjölskyldan er að bralla :)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...