Fara í aðalinnihald

Hundrað

Hundraðasta færslan lítur nú dagsins ljós.

Ætlaði að taka jólamyndirnar fyrir jólakortin af einkasyninum um helgina en honum tókst að detta á andlitið og fá sprungna vör. Við sjáum til á morgun hve bólgin vörin verður.

Smá tiltektardagur í eldhússkápunum í dag. Meðal annars var ég að taka upp úr kassa sem við pökkuðum í þegar við fluttum fyrir tæplega tveimur árum síðan. Kannski þarf ég ekkert á þessu að halda sem er í kassanum. Hef ekki mikið saknað þess. Ætli lærdómurinn sé ekki sá að ég verði að læra að henda meira drasli. Hef þetta líklega frá afa mínum sem henti aldrei neinu. Fræg er orðinn sagan þegar ég var ca. 5 ára og fór á haugana sem voru nú reyndar nokkuð öðruvísi en Sopra er í dag en þá voru ruslahaugarnir bara hrúga af drasli sem var svo mokað yfir þegar hún var orðin nógu stór. Þar sá ég fullt af heillegu dóti m.a. forláta hurð sem einhver maður var að henda. Ég var heldur betur hneyksluð og náði varla andanum yfir því hvernig honum dytti í hug að henda heilli hurð og vildi taka hana með mér heim ásamt fleiru. Foreldrar mínir voru mér ekki sammála.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með hundraðastu færsluna
S Ólafss

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...