Fara í aðalinnihald

7 ár - ullarbrúðkaup

Ég hef verið gift eiginmanninum í 7 ár í dag, skv. bókunum er þetta ullarbrúðkaup sem á vel við í kreppunni. Ótrúlegt til þess að hugsa að við höfum verið gift í heil sjö ár og þekkst í alls 12 ár. Já, tíminn líður hratt þegar lífið er skemmtilegt.

Ætlunin er að fara eitthvað út að borða líklega bara á skyndibitastað þar sem við ætlum að ná í bíó á eftir klukkan átta. Það er sjálfur Jón bóndi eða James Bond sem við hjónakornin ætlum að sjá. Legg ekki í tíu bíó þar sem ég er hrædd um að þá muni ég nú bara sofna. Best að drífa sig, ekki á hverjum degi sem maður kemst í bíó saman þegar maður er með lítinn gaur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...