Fara í aðalinnihald

Leikhúsferð á sunnudegi

Á sunnudegi er við hæfi að drífa sig í leikhús. Það var gert dag þegar ég og einkasonurinn fórum í Þjóðleikhúsið á Skilaboðaskjóðuna ásamt Árna Degi og föruneyti. Þetta er góð leið til þess að eyða sunnudagseftirmiðdegi þar sem bæði góðu persónurnar og vondu létu taka til sín. Einkasonurinn sagði nokkrum sinnum, þetta er bara í plati, þetta er bara í plati, en var ekki alltaf alveg viss.


Hérna eru tvær myndir af gaurunum á Skilaboðaskjóðunni. Ég var aldrei þessu vant ekki með myndavél en prófaði myndavélina á nýja símanum mínum (sem er svona lala) þar sem ég sleppi ekki "Kodak momenti" þegar ég sé það. Á myndunum eru Kristófer Óli, Árni Dagur og Viktor.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Flottir strákar. Kv. Siggi
Nafnlaus sagði…
Já ekkert smá flottir enda á ég einn þeirra (Viktor Örn) og annar er frændi (Árni Dagur). Sigurborg sendi mér likn á 3 röndótta :)
Gaman að þessu.
Kv. Anna Sigrún
Nafnlaus sagði…
Já þetta eru glæsilegir strákar og fyndið að þeir eru allir í röndóttu. Verst að vera ekki með betri myndavél á svona tíma.

Kv. Lilja Bjarklind

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...