Ég er ennþá golfekkja og í gærkvöldi tókst mér að sofna um leið og einkasonurinn enda var ég glaðvöknuð kl. 7.30 á laugardagsmorgni (vaknaði reyndar fyrst kl. 3.30). Jæja, einkasonurinn vaknaði stuttu seinna eða um 7.45 og við fórum fram. Mér tókst að borða morgunmat og ganga frá, taka úr uppþvottavélinni og hengja uppúr þvottavélinni, taka af snúrunni áður en klukkan varð 9.00. Enda hef ég lítið gert síðan, frekar næs að eiga svona smá heima dag eða heimamorgunn. Er að fara á flakk og svo á eftir er ætlunin að fara á opnun listaverkasýningar. Sjáum til hvað gerist eftir það...
Siggi hjólaði í vinnuna í dag í fyrsta skipti þetta árið. Í staðinn fékk ég að fara á bílnum í vinnuna og nýtti ég mér tækifærið og svaf aðeins lengur, en mætti þó í vinnuna 20 mínútum yfir átta. Oh, það var næs. Hinsvegar er verið að yfirfara holræsin í götunni minni og ekkert vatn í allan dag frá kl. 7:45 og fram á kvöld. Þegar ég var að fara á bílnum í vinnuna voru því einhverjir vinnubílar að skoða holræsin og ég eiginlega föst inní götunni. Það endaði með því að ég gerðist lögbrjótur og keyrði þar sem ég má ekki keyra, segi ekki meir ef löggan les reglulega síðuna!
Í gær fór ég í vikulegan göngutúr með Sigurborgu frænku og í þetta skiptið kom Hulda frænka með okkur. Við löbbuðum um laugardalinn og hverfið þar í kring, í yndislegu vorveðri. Svona á lífið að vera.
Ummæli