Fara í aðalinnihald

Jeppaferðin

Áttum skemmtilega jeppaferð á sunnudaginn þar sem m.a. var skoðað:

Farið

útsýni frá Hagavatni

Jarlhettur


Gullkista

Posted by Picasa

Ummæli

Nafnlaus sagði…
iss, þegar ég, pabbi og Íris fórum þarna keyrðum við þarna upp að Hagavatni :)
Jana
LBK sagði…
Það hafa þá verið förin eftir ykkur sem ég sá upp bröttu brekkuna. Púff, ég þakkaði mínu sæla fyrir að fá að labba þessa brekku. Þó voru einhverjir sem tautuðu að það hefði nú verið gaman að keyra hana en þá hefði ég örugglega hoppað út á ferð þannig að þið eruð hetjur að hafa setið í alla leið upp.

Kveðja, Lilja Bjarklind
Nafnlaus sagði…
ójá við lokuðum öll augunum, pabbi líka! hún var sko rosalega brött að við bara héldum að bílinn myndi ekki tolla á henni :P jana

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...