Fara í aðalinnihald

Borða með puttunum

Hér kemur enn ein saga af einkasyninum. Borðsiður einkasonarins eru ekki með besta móti. Það gengur eitthvað erfiðlega að láta hann borða með gaffli og helst vill hann bara nota guðsgafflana til að stinga matnum upp í sig. Við erum búinn að prófa ýmislegt til að bæta borðsiðina, m.a.:
  • benda honum á að þetta séu nú ekki góðir borðsiðir og hvernig góðir borðsiðir eigi að vera,
  • að svona geri bara litlir krakkar,
  • hvort hann geri nokkuð svona í leikskólanum,
  • segja honum að við ætluð að senda hann í mannasiðaskóla,
  • og ég veit ekki hvað og hvað,
en þetta virðist vera eílíf barátta. Suma daga gengur alveg ágætlega en aðra daga gleymir einkasonurinn sér og notar bara hendurnar.

Einn daginn fyrir nokkrum vikum þegar ekki gekk nógu vel og ég var búinn að prófa öll trixin að ofan og fleiri til, þá bjó ég til smá sögu (kannski smá fordómafulla en hvað reynir maður ekki) um að svona gerðu nú bara villimennirnir í Afríku. Þeir eru þeir einu sem borða með höndunum aðrir "siðmenntaðir" menn notuðu hnífapör.

Það er greinilegt að eitthvað fer inn þegar maður er að reyna að siða einkasoninn því í kvöld vorum við að horfa á einhvern sjónvarpsþátt um fjölskyldu sem býr í Afríku. Allt í einu koma fullt af dýrum (ljón, gíraffi, flóðhestur og nashyrningur) og ég bendi Kristófer Óla á það og segi honum að þessi dýr og þetta fólk eigi heima í Afríku. Hann var fljótur að svara eins og ávallt og sagði "Borða þau með puttunum?"

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?