Fara í aðalinnihald

Auka frídagur

Mér tókst loksins að taka mér aukafrídag í dag en ætlunin var að taka hann á föstudaginn, sem frestaðist vegna veikinda. Það var svo sem ágætt að geta lengt fríið eða veikindafríið. Þó að ég sé hálfslöpp ennþá þá tókst mér að gera alveg fullt. Það var einhvern veginn svona:
  • Fara með soninn til eyrnalæknis
  • Kringlan (kíkt á sumarhúfu fyrir soninn og hann fékkst til að máta hana. Engin húfa þó keypt í þetta skiptið)
  • Keyra heim
  • Út að borða í hádeginu (sonurinn fékk að velja - McDonalds í Skeifunni)
  • Keyra niður í bæ
  • Fara með soninn í klippingu í Grafarvoginn (NB. það er út í sveit!)
  • Fara með peningabaukinn í bankann með syninum
  • Skoða dýrabúðina í Mjódd með syninum
  • Netto
  • Keyra aftur heim og vorum heima í klst. í þetta skiptið
  • Keyra niður í bæ
  • Skila bók sem gleymdist á bókasafnið.
Auk þess fullt af öðrum smáatriðum, það er spurning hvort að hægt sé að kalla þetta frídag. Svo ætla ég að kíkja á vinkonu mína í kvöld sem er 35 ára í dag, til hamingju með afmælið Gunnhildur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hahaha Grafarvogur er sko ekki upp í sveit! Kópavogur er niðrí sveit!
:D
Jana
Nafnlaus sagði…
framundan eru 2 svona frídagar hjá mér...þeir eru alveg skemmtilegir en ég er yfirleitt þreyttari eftir þá en eftir vinnudaginn!!
kv. Sigurborg

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Hakk og spagettí

Hakk og spagetti er á boðstólnum í þriðja skiptið þessa vikuna. Fengum það fyrst á sunnudaginn og svo aftur á þriðjudaginn, vorum boðin í mat í bæði skiptin. En þar sem þetta er reyndar uppáhaldið hjá feðgunum þá er það bara mjög gott mál. Ef einhverjum öðrum langar að bjóða okkur í hakk og spagetti, þá endilega bjóða sig fram. Í dag ákváðum við að elda í þriðja skiptið hakk og spagettí en það er reyndar bara handa einkasyninum (hann bað sérstaklega um það) en við ætlum að búa til eitthvað annað úr hakkinu okkar, ætli það verði ekki bara buff. Í þessum skrifuðu orðum eru feðgarnir í eldhúsinu að elda. Annar að elda og hinn að hjálpa til, einkasonurinn er nefnilega nokkuð viss um að það gangi ekki að elda nema hann hjálpi til.