Fara í aðalinnihald

Meira dót

Einkasonurinn hefur dálæti á auglýsingabæklingum, sérstaklega dótauglýsingabæklingum. Hann situr og velur sér dót sem honum langar í. Ekki er verra að annað hvort okkar foreldranna sé að skoða bæklingana með honum svo hann geti nú sagt okkur hvað honum langar í svo við getum vitum hvað við eigum að kaupa næst þegar farið er í dótabúð. Þegar ég skoða bæklinginn með honum skoðar hann stundum stelpudótið líka, þar sem hann er viss um að það sé draumur minn að eignast það.
Í gær voru feðgarnir að skoða enn einn dótabæklinginn saman en skiptu um hlutverk.
Faðirinn: "Mamma, mamma, mig langar svona dót og svona dót, mig langar í allt sem er í blaðinu".
Kristófer Óli snéri sér aftur og horfði á allt dótið sem var í hilluni en sagði svo: "Þú átt nóg af dóti".
Faðirinn gafst ekki upp og sagði: "Mig langar samt í svona og svona og svona".
Kristófer Óli sagði þá frekar þreytulega: "Það er ekki hægt, ég á svo lítinn pening. Þú getur ekki fengið allt".

Ó já...

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hahahhahaha, þessi drengur er alveg MAGNAÐUR!
Magga frænka
Nafnlaus sagði…
Er ekki spurning að setja í eina stelpuuppskrift svo Kristófer geti nú valið dótið handa henni - góður veljari
:)
IS

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...