Fara í aðalinnihald

Óveður

Það er bara brjálað verður dag eftir dag. Öllu skólahaldi aflýst í dag á höfuðborgarsvæðinu, held að það hafi ekki gerst síðan ég var lítil en það eru mörg ár síðan ég var lítil. Ég þorði ekki annað en að halda einkasyninum inni þar sem hann er "leik"skólabarn þannig að hann er í góðu yfirlæti heima hjá mér, a.m.k. fyrir hádegi.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Skólahaldi er EKKI aflýst, en trúðu mér það eru ansi margir sem halda það en auðvitað skil ég það MJÖG vel að nota þessa afsökun enda ALLIR unglingar hjá mér farnir heim - hver myndi ekki nýta þessa afsökun frá almannavörnum??
Njóttu þess bara að vera heima - ég er nefnilega ekki nemandi lengur :o og get ekki nýtt þetta
IS
Nafnlaus sagði…
Mér finnst ég alltaf vera að missa af e-u þegar ég er ekki á landinu og óveður gengur yfir. Veit bara ekki hvenær ég upplifði síðast alvöru storm. Vona nú samt að þetta verði fljótt að ganga yfir og sérstaklega að e-r lægðin ákveði ekki að ganga yfir eftir viku þegar ég ætla mér að stíga upp í flugvél :-)
Njótið veðursins
Bergrún

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?