Fara í aðalinnihald

Gleðilegt sumar

Aldeilis komið sumar á Íslandi með tilheyrandi frosti!

Við fengum að vita í gær að við hefðum fengið sumarbústað á Stykkishólmi fyrstu vikuna í ágúst. Mér telst til að það sé hvorki meira né minna en verslunarmannahelgin. Sem sagt partý og læti á Stykkishólmi um verslunarmannahelgina - öllum boðið. En ef öllu gríni er sleppt þá er þetta reyndar íbúð í sjálfum bænum en mér líst bara ágætlega á en við eigum ennþá eftir að ákveða hvort að við tökum hana eða ekki. Höfum helgina til að ákveða okkur. Hvað varðar parýhald þá erum við nú þekktari fyrir eitthvað annað en að vera í hörkudjammi um verslunarmannahelgina. Síðasta sumar þegar við fórum í sumarbústað gleymdum við að fara í ríkið, svo mikil var parýþörfin.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
gleðilegt sumar
jana
Nafnlaus sagði…
Gleðilegt sumar! Mæti í partý á Stykkishólmi.
Sigurborg
LBK sagði…
Þú ert velkomin.
Kveðja, Lilja Bjarklind

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Það er úti veður vont

Ekki var það nú skemmtilegt veður í dag, en ég er alltaf svo bjartsýn að ég er viss um að það sé að koma vor. Jæja, það kemur a.m.k. að lokum. Ég fór út í göngutúr í dag með einkasyninum og það lá við að við urðum úti. Endaði með því að ég varð að hringja í eiginmanninn og biðja hann um að koma að sækja okkur. Einkasonurinn var nú í góðum málum, í flíspeysu og buxum, stígvélum og pollagalla en ég hafði ekki haft vit á því að fara í pollabuxur og var orðinn hundblaut á rassinum. Aðstæður voru nú þannig að við vorum með vindinn í bakið mest alla leiðina en við (þ.e.a.s. ég) nenntum ekki að snúa við og hafa þá vindinn og þar með rigninguna framan í okkur á leiðinni til baka þannig að heitur bíll var einhvernveginn mikilu meira freistandi. Þó svo að maður eigi bara að skilja símann eftir í göngutúr og njóta náttúrunnar þá var ég feginn að hafa tekið gemsann með í þetta skiptið.