Fara í aðalinnihald

Vegabréf og önnur mál

Náði í vegabréf feðganna í dag og ég get nú ekki sagt að myndirnar af þeim séu uppá margar fiska. Annar bítur í neðri vörina á sér og hinn svolítið krimmalegur með hálflokuð augun.

Einkasonurinn er búinn að vera bleyjulaus alla vikuna í leikskólanum þannig að ótrúlegt en satt, hann er eiginlega hættur með bleyju og það áður en hann varð þriggja ára. Það þarf reyndar aðeins að ýta á eftir honum en það varð ekkert slys í leikskólanum nema einu sinni fyrsta daginn. Númer 2 er reyndar smá vandamál ennþá og næturnar en við tökum við öllum sigrum og höldum uppá þá.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til lukku með bleyjumálin - ekki það auðveldasta hjá litlum köllum :) enda eru þeir oftast aðeins seinni til en hitt kynið..
kv.
IS
LBK sagði…
Takk fyrir það. Það er ótrúleg hamingja með þetta hjá foreldrunum.

Kveðja, Lilja Bjarklind

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?