Fara í aðalinnihald

Sunddrottning

Fór í sund í kvöld og það minnti mig á hvað ég mér finnst gaman í sundi. Nú er ég búinn að lofa sjálfri mér að fara í sund einu sinni í viku og þá á ég ekki við sundkennslu einkasonarins. Það var einnig gaman að koma aftur í "gömlu sundlaugina mína" í Kópavogi sem ég stundaði grimmt fyrir um tíu til fimmtán árum síðan.
Það hafði ekkert breyst nema konurnar í afgreiðslunni voru núna pólskar. Ok, reyndar er líka verið að byggja nýja búningsklefa. Hinir voru bara til bráðabirgða sem voru byggðir fyrir um 15 árum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Er akkúrat á leiðinni í þessa lauga á fimmtudagskvöldið!
kv. syo