Fara í aðalinnihald

Ekkert nema Skattmann

Gerðist nú ekki mikið annað í dag en að ég mætti í vinnuna kl. 10.02 og fór úr henni kl. 19.14.

Á morgun eigum við að skila skattframtalinu. Fengum smá frest eins og sönnum Íslendingum sæmir og eins og sönnum Íslendingum sæmir byrjuðum við á skattframtalinu í kvöld. Það verður alltaf þægilegra og þægilegra með hverju árinu sem líður. Næstum búið að setja allt inn fyrir mann og það eina sem maður þarf að gera er að samþykkja, meira að segja hægt að senda upplýsingar úr bankanum á skattframtalið. Greinilegt að ríkið fylgist vel með manni. Ég þarf nú samt alltaf að reikna þetta allt út aftur þannig að þó að við séum búinn að fara yfir skattframtalið þá geri ég ráð fyrir að eyða mánudagskvöldinu í það að reikna út hvort að mínar tölur séu ekki örugglega réttar hjá Skattmann.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Sumarfrí á enda

Kristófer Óli svaf eins og steinn í nýja rúmminu sínu og í herberginu sínu. Held að þetta hafi verið erfiðara fyrir foreldrana en hann. A.m.k. fyrir móður hans sem vaknaði örugglega fjórum sinnum um nóttina til að kíkja á hann. Föðursystir hans Kristófers Óla, sem hann kallar alltaf Göggu hæ kom í dag í heimsókn og fékk Kristófer Óla lánaðan og foreldrarnir tóku til í íbúðinni á meðan. Sér varla högg á vatni. Kristófer Óli var voða monntinn með nýja rúmmið sitt og æstist allur upp þegar hann var að sýna Göggu hæ það. Svo komu amma og afi úr Hörgatúninu með nýja dýnu í rúmmið, gæti ekki verið betra. Nú er bara að kenna drengnum að sofna sjálfum og á kopp og þá er foreldrahlutverkinu lokið, eða hvað? Annars er sumarfrí mitt á enda að þessu sinni, bara vinna á morgun. Dagurinn í dag var því bara í leti og lítið gert annað en að reyna að halda heimilinu í þokkalegu. Ég vinn reyndar ekki alla vikuna þar sem Kristófer litli Óli er að byrja í aðlögun í leikskólanum á morgun og verður það út v...

Sund og grasekkja

Kíkti á nýju sundlaugina í Mosfellsbæ í dag með vinkonu minni og syni hennar og á örugglega eftir að fara þangað aftur. Fínasta aðstaða fyrir barnafólk og fullt af rennibrautum þó svo að einkasonurinn hafi aðeins þorað að fara í þá minnstu sem var í barnalauginn þá grunar mig að það sé ekki langt í það að hann prófi stærri rennibrautir. Annars er ég grasekkja þessa helgina þar sem eiginmaðurinn fór í golfferð sem er reyndar með styttra mót þetta árið. Frétti af honum þar sem hann var nýbúinn að spila 18 holur í grenjandi rigningu.

Hakk og spagettí

Hakk og spagetti er á boðstólnum í þriðja skiptið þessa vikuna. Fengum það fyrst á sunnudaginn og svo aftur á þriðjudaginn, vorum boðin í mat í bæði skiptin. En þar sem þetta er reyndar uppáhaldið hjá feðgunum þá er það bara mjög gott mál. Ef einhverjum öðrum langar að bjóða okkur í hakk og spagetti, þá endilega bjóða sig fram. Í dag ákváðum við að elda í þriðja skiptið hakk og spagettí en það er reyndar bara handa einkasyninum (hann bað sérstaklega um það) en við ætlum að búa til eitthvað annað úr hakkinu okkar, ætli það verði ekki bara buff. Í þessum skrifuðu orðum eru feðgarnir í eldhúsinu að elda. Annar að elda og hinn að hjálpa til, einkasonurinn er nefnilega nokkuð viss um að það gangi ekki að elda nema hann hjálpi til.