Fara í aðalinnihald

Den lune jyde

Fór í RL í dag og splæsti í einn kodda, sem heitir því skemmtilega nafni "Den lune Jyde". Við skötuhjúin ættum því að getað sofið vel í nótt en eigum einn svona kodda fyrir sem við keyptum á Akureyri í sumarfrínu okkar síðasta sumar þegar við vorum á leið í sumarbústað og föttuðum að við höfðum gleymt góðum kodda. Frá því hefur verið rifrildi á hverju kvöldi hver ætti að fá koddan þá nóttina, tja eða þannig.
Fann nú ekki mikið meira í RL, en ætlaði að kaupa líka plastbox en þau voru ekki til. Lét þó freistast og keypti eitt Bubba byggir handklæði handa einkasyninum. Það er ótrúleg hvað fæst í þessari búð og verðið er nú bara næstum því eins og í Kína, enda voru einhver kínversk tákn á handklæðinu, ekki verra að eiga Bubba byggi sem að talar kínversku.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?