Fara í aðalinnihald

Systrakvöld og hjólatúr

Átti skemmtilegt kvöld í gærkvöldi þar sem sjö systur (af níu og þar á meðal móðir mín) og nokkrar dætur þeirra hittust til að kjafta, borða og kaupa snyrtivörur. Já, stundum langar manni til að eiga svona eins og eina systur en þá er gott að eiga heilan haug af frænkum í staðinn.

Ég er og einkasonurinn drifum okkur í smá hjólatúr í dag þar sem lítið var nú hjólað. Hann sat eins og prins á hjólinu og bað mig um að ýta sér. Eftir að hafa neitað lengi sem endaði með því að hann var kominn af hjólinu og var að ýta því sjálfur gafst upp að lokum og ýtti honum einn hring í dalnum. Þó svo að hann kunni nú alveg að hjóla, þá var hann greinilega eitthvað ryðgaður eftir veturinn, enda líka miklu þægilegra að láta keyra sig um eins og prins. Það var svo mikil rigning að ég þurfti að þurrka á mér hárið með handklæði þegar ég kom inn. Ég stend við fyrri færslu, um að vorið sé komið eða alveg að koma. Tja, þangað til að það fer að snjóa aftur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?