Fara í aðalinnihald

Blögg og ekki blögg

Það mætti segja að enginn sé maður með mönnum nema hann eigi a.m.k. eina ef ekki tvær blöggsíður í dag. Allir eru að keppast við að vera sem frumlegastir við blöggið sitt. Moggablöggið tröllríður nú þjóðfélaginu og maður getur varla komist hjá því að skoða eitt eða tvö moggablögg ef maður á annað borð skoðar mbl.is. Flott að blögga um fréttir! Svo eru blöðin og nú Ísland í dag á Stöð 2 farin að vitna í hin og þessi blögg. Greinilegt að sumar blöggsíður eru vinsælli og flottari en aðrar.

Sumir eru að velta því fyrir sér hvaða frétt á að blögga um næst, hvernig best sé að vera sem frumlegastur eða segja eitthvað gáfulegt um hitamál í þjóðfélaginu og helst þarf að blögga einu sinni á dag. Ég blögga nú bara um mitt daglega líf og fyrir mig og karlana mína tvo (eiginmanninn og einkasoninn) þegar mér dettur í hug. Held þessu aðallega út sem dagbók, nokkurs konar geymslustað fyrir mig enda hef ég ekki látið marga vita af þess blöggi eins og sést kannski best á þeim griðarlega fjölda "commenta" sem ég fæ. Væri kannski gáfulegra að hafa þetta læst en ég mér er svo sem sama hver les þetta, a.m.k. í bili. Lifi líklega ekki það spennandi lífi og hugsa nú að það hafi ekki margir aðrir áhuga á því aðrir en ég, enda og skrifa sjaldan um fréttir og hitamál í þjóðfélaginu.

Æ, best að skrifa um eitthvað skemmtilegra á morgun.

Ummæli

Bergrun sagði…
Ég les alltaf hjá þér og hef gaman af. Hef meira að segja kommentað líka :-) Og ég er alveg sammála þér um þessi blogg öll sömul, finnst allt í lagi að nota þetta sem dagbók bara. Það er mjög gaman að lesa þetta yfir seinna og þó svo að maður segi ekki allt sem maður myndi skrifa í venjulega "lokaða einkadagbók" þá rifjast þeir hlutir oft upp við lestur gamalla færslna

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...