Það hefur varla farið framhjá neinum að það hefur kingt niður snjó á höfuðborgarsvæðinu, ég hef verið að mestu leiti inni vegna veikinda einkasonarins. Rétt farið á milli heimilis og vinnu alla síðustu viku. Fór aðeins út í dag og fannst bara heldur mikill snjór. Hef verið að ræða þetta við eiginmanninn og við vorum sammála um það að okkur fannst ekki hafa komið svona mikill snjór síðan við fluttum heim í desember 2001. Það kom líka á daginn að við höfðum hittum naglann á höfuðuð að þessu sinni. En það er nú gaman að hafa smá snjó úti, verst er að einkasonurinn getur lítið notið þess.
Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.
Ummæli