Skelltum okkur austur fyrir fjall í 1 árs afmæli. Afmælisbarnið varð nú minnst var við allt umstangið en svona er það bara þegar maður er bara 1 árs. Þá skilur maður nú ekki allt. Gekk samt ágætlega að blása á kökuna enda hafði afmælisbarnið góða aðstoðarmenn. Alltaf gaman að fara í afmæli, ég tala nú ekki um 1 árs afmæli. Þau eru nú nokkuð merkileg, eða það finnst mér. Þetta er í fyrsta skipti á æfinni sem maður á afmæli.
Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.
Ummæli