Fara í aðalinnihald

Menningarleg

Fékk ótrúlegt tilboð í gær sem ég ákvað svo að neita eftir að hafa skipt um skoðun svona 20x. Er mjög sátt við ákvörðunina þar sem ég tel mig vera frekar privat með allt mitt og svo finnst mér líka töff að vera nóbodý þó svo að ég haldi út þessu bloggi.

Annars fór ég í kvöld á forsýningu Macbeth hjá Þjóðleikhúsinu ásamt eiginmanninum og systkynum hans. Var nú ekki alveg viss um út í hvað ég væri að fara og runnu á mig tvær grímur í upphafi verksins en þegar á leið þá vann verkið á og ég var mjög sátt við það í enda sýningar. Tel þó að það hafi líklega aðeins háð mér að ég hafði ekki hugmynd um hvað Macbeth fjallar um áður en ég fór á sýninguna. Flott sýning, góðir leikarar, já ég mæli þessu verki.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vá hvað ég er forvitin að frétta meira af þessu "tilboði"

B
Nafnlaus sagði…
já ég líka!

J ;)
Nafnlaus sagði…
Tilboðið gekk m.a. út á það að koma nakinn fram, tja svona næstum því. (Smá krydduð útgáfa af tilboðinu).
Eruð þið forvitnar?

LBK
Nafnlaus sagði…
Já ég er sko forvitin enn og eiginlega enn forvitnari en í gær
B
Nafnlaus sagði…
ójáhá, hva er þetta íslensk útgáfa af how to look good naked? :)

koma svo með þetta maður er alveg að deyja eins og kötturinn.

Jana
LBK sagði…
Það hefur eitthvað að gera með mannlíf og já, tengist sjónvarpsþætti en þó ekki þessum. Segi ykkur það við fyrsta tækifæri. Spennandi að hitta mig!!!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...