Fara í aðalinnihald

Fjör í París

Hér koma skemmilegu myndirnar úr Parísaferðinni


Varð að taka mynd af þessu, fannst við verra komin 30 ár aftur í tímann,
svo er spuring hvað gerist þarna innan dyra.


Einn af vinum hans Sigga sem hann kynntist þegar ég var á ráðstefnunni


Fararskjótinn okkar í París, þessi með myndinni... hahahahah


Þarna erum við að reyna að taka mynd af okkur við sigurbogann, tókst svona og svona.

Við Hvítu kirkjuna var heljarinnar útsala sem minnti bara á heimaslóðir.

Við fundum loksin myllu rétt hjá hvítu kirkjunnu Sacré-Cœur. Vorum viss um að þetta væri Moulin Rouge en fannst smá skrítð að myllan væri ekki rauð. Komumst svo að því að þetta er allt önnur mylla, hahahah.

Í lok ferðarinnar fórum við í Lúxemborgargarðinn og lékum okkur að lauflöðum.
Svaka fjör hjá okkur, þetta var yndislegur dagur og krökkt af fólki.


Posted by Picasa

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvar er þessi flotti "30 ár aftur í tímann" gluggi? Ég held svei mér þá að ég hafi barasta ekkert séð alla París :-O
LBK sagði…
Þessi gluggi er á Rue de Lyon. Við sáum hann í gönguferð fyrsta daginn þegar við löbbuðum frá hótelinu fram hjá Gare de Lyon og áleiðsi til Place de la Bastille.
Ég kíkti á þetta í Google Earth til gamans og það var frekar fyndið en ég fann akkúrat þessa búð með því að ýta á Steet View og 118 Gare de
Lyon, mæli með Google Earth.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...