Fara í aðalinnihald

Rigning og sund

Fyrsti rigningadagur sumarsins og fyrsti sumarfrísdagur minn. Leit ekki vel út þegar ég kíkti út í morgun en dagurinn snarbatnaði við símatal um hádegisbilið og uppúr hádegi vorum ég og einkasonurinn kominn í sund með vinkonu minni. Fór í fyrsta skiptið örugglega í 15 ár í Sundhöll Reykjavíkur og þar hefur ekkert breyst frá því að ég kom þangað síðast, nema kannski sturturnar. Ég er nú alltaf frekar veik fyrir gömlum byggingum þannig að það var mjög gaman að koma aftur í Sundhöllina. Seinnipart dagsins síðan var eytt á Bergþórugötunni og svo fór ég meira að segja að æfa í kvöld, ó já hvað ég ætla að gera mikið í sumarfríinu.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju Lilja mín með sumarfríið. Góðar stundir framundan, ég á eina og ´hálfa viku eftir og nýti hverja stund til hins ítrasta. Nú á ég bara einn kettling eftir að koma á heimili púff ég hélt bara að þetta mundi ekki takast hjá mér þeir voru farnir að komast yfir girðinguna sem ég púslaði saman og skíta í þvottakörfuna mína oj.
Ég er alltaf í sundi þessa dagana og nýt þess að vera í fríi.
Kveðja Magga.
LBK sagði…
Gaman að heyra í þér Magga mín. Gott að heyra að þú hefur það sem allra best í sumarfríinu. Hittumst vonandi fljótlega.

Kveðja, Lilja Bjarklind

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Það er úti veður vont

Ekki var það nú skemmtilegt veður í dag, en ég er alltaf svo bjartsýn að ég er viss um að það sé að koma vor. Jæja, það kemur a.m.k. að lokum. Ég fór út í göngutúr í dag með einkasyninum og það lá við að við urðum úti. Endaði með því að ég varð að hringja í eiginmanninn og biðja hann um að koma að sækja okkur. Einkasonurinn var nú í góðum málum, í flíspeysu og buxum, stígvélum og pollagalla en ég hafði ekki haft vit á því að fara í pollabuxur og var orðinn hundblaut á rassinum. Aðstæður voru nú þannig að við vorum með vindinn í bakið mest alla leiðina en við (þ.e.a.s. ég) nenntum ekki að snúa við og hafa þá vindinn og þar með rigninguna framan í okkur á leiðinni til baka þannig að heitur bíll var einhvernveginn mikilu meira freistandi. Þó svo að maður eigi bara að skilja símann eftir í göngutúr og njóta náttúrunnar þá var ég feginn að hafa tekið gemsann með í þetta skiptið.