Fara í aðalinnihald

Bóndabrúnka

Ég er kominn með bóndabrúnku. Sem sagt orðinn smá brún í andliti og hálsi og á handleggjum upp að stuttermunum. Þegar ég fer úr stuttermabolnum þá er eins og ég sé í hvítum bol með brúna handleggi, háls og andlit!
Já, nýlega (í raun rétt áður en góða veðrið byrjaði) var lögð sétt í eitt hornið við vinnustaðinn minn, núna sitjum við þar úti allan hádegismatinn í staðinn fyrir að hýrast inni á kaffistofunni. Ég hef hins vegar ekki haft vit á því að koma í hlýrabol og er því kominn með þessa fínu bóndabrúnku. Verð flott þegar ég fer að stunda sundið á hverjum degi í sumarfríinu. Ég er hinsvegar mjög fljót að verða hvít aftur þannig að ég hef reyndar ekki alltof miklar áhyggjur af þessu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?