Fara í aðalinnihald

Kóngulóin ógurlega

Þegar við komum heim í dag var kónguló búinn að gera sig heimakomna fyrir utan eldhúsgluggann. Í staðinn fyrir að opna gluggan eins og ég geri alltaf þegar ég kom heim, ákvað ég bara að hafa hann lokaðan en sýndi einkasyninum kóngulónna. Honum varð svo mikið um að hann fór inn í herbergið sitt og vildi helst hafa lokað þar inn svo að kóngulóin kæmist ekki inn.

Það skal tekið fram að ég hef ekki alið á ótta hans við kóngulær, mér er svo sem ekki vel við þessi kvikindi en ef þau eru ekki alltof nálægt mér (t.d. gluggi á milli sem er lokaður) þá get ég alveg skoðað þau án þess að stressast upp. Ég ákvað því að leyfa eiginmanninum að kljást við kóngulónna.

Um kvöldmatarleytið fór eiginmaðurinn hinsvegar út að hlaupa þannig að kóngulóin var á sínum stað en eldhúsborðið er alveg við gluggan þar sem kóngulóin var. Þegar komið var að því að borða kvöldmatinnn fékkst einkasonurinn ekki fyrir sitt litla líf til þess að sitja við eldhúsborðið þar sem köngulóinn var úti í glugga og hélt sem fastast í mig skíthræddur. Það endaði með því að við borðuðum við borðstofuborðið en kóngulóin situr sem fastast ennþá úti í glugga.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?