Sumarið er komið og eins og aðrir Íslendingar höfum við tekið fram grillið með stæl, jafnvel þó að við höfum grillað af og til í vetur. Nú er nánast grillað á hverjum degi og ef einhvern vantar grilluppskriftir þá er bara að hafa samband við eigimanninn. Hann er búinn að grilla fylltar svínalundir, humar, svínasnitsel, smálúðu, kjúklingalæri og bringur, bleikju, hamborgara og pylsur svo fátt eitt sé nefnt. Einnig höfum við prófað að grilla grænmeti á marga vegu, uppáhaldið eru paprikur, sveppir og laukur.
Siggi hjólaði í vinnuna í dag í fyrsta skipti þetta árið. Í staðinn fékk ég að fara á bílnum í vinnuna og nýtti ég mér tækifærið og svaf aðeins lengur, en mætti þó í vinnuna 20 mínútum yfir átta. Oh, það var næs. Hinsvegar er verið að yfirfara holræsin í götunni minni og ekkert vatn í allan dag frá kl. 7:45 og fram á kvöld. Þegar ég var að fara á bílnum í vinnuna voru því einhverjir vinnubílar að skoða holræsin og ég eiginlega föst inní götunni. Það endaði með því að ég gerðist lögbrjótur og keyrði þar sem ég má ekki keyra, segi ekki meir ef löggan les reglulega síðuna!
Í gær fór ég í vikulegan göngutúr með Sigurborgu frænku og í þetta skiptið kom Hulda frænka með okkur. Við löbbuðum um laugardalinn og hverfið þar í kring, í yndislegu vorveðri. Svona á lífið að vera.
Ummæli
Og þá taka mennirnir við eldamennskuni á mörgum heimilum og við konurnar getum bara slappað af með hvítvín og dást af manninum okkar bístrast við grillmatinn af mikilli natni.
Ekki satt.
Kveðja Magga vinkona í Hveragerði.
Kveðja, Lilja Bjarklind