Fara í aðalinnihald
Bílamál
Það er víst bara framhaldsaga af bílnum okkar, gráa fiðringnum. Hann er víst að deyja núna eða allavega erum við því miður ekki það miklir bifvélavirkjar að við getum lagað hann. Núna lekur víst vatnskassinn og þruftum við alltaf að fylla á vatnskassann í áður en að við lölgðum af stað en nú er svo komið að ekki er hægt að keyra hann lengur. Því miður.

Við höfum eitthvað verið að skoða hvort að við getum keypt nýjan bíl og hefur það átt hug okkar allan síðustu daga að velta þessu fyrir okkur. Við höfum ekki komist að neinni vitrænni niðurstöðu. Höfum verið að skoða Renault Megane Classic sem frændi minn á en enga ákvörðun tekið. Þetta verður víst allt að koma í ljós á næstu dögum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?