Fara í aðalinnihald
Hold kæft - det er kold
Það er greinilegt að við búum á Ís-landi. Að minnsta kosti stóð nafnið undir sér í dag. Alveg skítakuldi og þegar að við Sigrún vorum að reyna að fara út í Hagkaup í hádeginu í dag þá var ég nú ekki viss um að við höfðum það af og ekki er nú ekki langt á milli. Við vorum svo heppnar að hitta samstarfskonu okkar í búðinni og fengum far með henni til baka, annars hefðum við örugglega bara orðið úti. Og það á að vera kaldara á morgun. Annars á maður nú bara að gleðjast yfir veðrinu, eins gott að það er ekki slydda og slabb. Það er kalt úti en það er hægt að hafa það notalegt heima hjá sér, t.d. í góðum sófa fyrir framan sjónvarpið undir flísteppi með kertaljós og bolla af kakó.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?