Fara í aðalinnihald

Augnsýking - Dagur 4

Ég held bara að ég sé að lagast af augnsýkingunni, en þori ekki að gefa út neinar yfirlýsingar fyrr en eftir nóttina. Hins vegar er ég að versna af hálsbólgunni illt í hálsinum, erfitt að kyngja og byrjuð að hósta hressilega! Hvar endar þetta? og það ekki einu sinni kominn janúar. Ætli maður þurfi ekki bara að fara í einangrun. Allir skíthræddir við mig í vinnunni yfir því að smitast af mér og kannski best að halda sig bara heima. Jæja, ætla að taka mér frí eftir hádegi á morgun þannig þetta reddast kannski fyrir horn.

Annað mál þá fannst mér svolítið skrítið í dag þegar ég var að keyra heim úr vinnunni rúmlega fjögur að það var að verða dimmt. Jæja eftir nokkra daga getur maður sagt að það fari að vora eða a.m.k. að birta aftur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vonandi fer þér að batna Lilja mín.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?