Fara í aðalinnihald

Augnsýking - Dagur 3

Kæri Jóli
Ég þakka þér kærlega fyrir jólagjöfina sem þú gafst mér í byrjun mánaðarins en ó boj, ó boj, augnsýking! Ég helt að það yrði kannski eitthvað skemmtilegra sem ég fengi frá þér og í dag fékk ég einnig hálbólgu, hvar endar þetta! Ég er hrædd við að opna pakkann á morgun.

En jæja, augnsýkingin heldur áfram og við bætist meiri hálsbólga. Mér var ráðlagt að fara heim í dag í vinnunni og drífa mig til augnlæknis. Auðvitað gerið ég hvorugt og vann í staðinn til kl. 18 í dag. Eftir vinnu fór ég svo til tengdó í mat og því næst á einhverja brjálaða útsölu þar sem fólk stóð í röðum inn eftir allri búð og í röðum til að komast inn í næstu búð. Mér varð svo mikið um að ég keypti ekki neitt en er samt feginn að vita að mig vantar bara alls ekki neitt. Núna er ég alveg búin og er að spá í að skríða upp í rúm.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...