Ég var heldur betur búinn að koma mér vel fyrir framan sjónvarpið að horfa á danskan sakamálaþátt, nýbúinn að poppa og meira að segja komin með sængina fram. Púff!!! þá fór rafmagnið í rúmlega háfltíma. Sem betur fer var ég búinn að kveikja á kertum og tölvan er með batterí. Ég lagaði aðeins til í myndunum á tölvunni og svo kom rafmagnið aftur en uppgötvaði að hvað nútímamanneskjan ég er háð rafmagninu.
Já, þá er sumarið víst komið og tja jafnvel farið þetta árið. í gær var sumardagurinn fyrsti og aldrei man ég eftir að það haf verið janf gott verður á sumardagin fyrsta og í gær, algjör bongóblíða. Ingólfur bróðir átti afmæli í gær, 22. apríl, þannig að við fórum í smá kaffiboð til hans og Ingu og fengum þessa fínu súkkulaðitertu með jarðaberjum og rjóma, namm, namm og takk fyrir mig.
En við stóðum í stórræðum í gær, þó aðallega Siggi en ég sá um að stjórna. Siggi málaði nefnilega stofuna hjá okkur. Reyndar náði hann bara að mála þrjá veggi en þá kláraðist málingin. Að sjálfsögðu er núna miklu bjartara og fallegra inní litlu stofunni okkar og við skiljum bara ekki af hverju við vorum ekki búin að gera þetta miklu fyrr.
Við héldum svo uppá sumarið með því að skella okkur á “stælinn” (þýðing: American Style) um kvöldið. Ekki leiðinlegur dagur það.
Í dag er svo hálfgerður mánudagur en í raun er föstudagur. Mjög svo skemmtilegt því á morgun er nefnilega komin helgi aftur. Mætt...
Ummæli
Bergrún