Fara í aðalinnihald

Fyrst ég er byrjuð...

...á svona Internetprófum er bara best að halda þeim áfram. Ekkert merkilegt að blögga um hversdagsleikann þegar maður er búinn að vera hálfan mánuð úti á Florida.



Þú fellur fyrir proskum (prins + froskur).


Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa er ljóst að þú fellur fyrir proskum. Líklegt er þó að þú mótmælir þeirri niðurstöðu. "Nei, ég fell fyrir prinsum," kanntu að hugsa. Ástæðan er sú að þú ert í afneitun! Við fyrstu sýn virðist proskur nefnilega prins. Hann lokkar til sín dömurnar með breiðu, skjannahvítu brosi og gljáfægðri kórónu. Hann heldur dyrum opnum fyrir þér, færir þér blóm og leggur afmælisdaginn þinn á minnið. En þegar proskurinn hefur veitt þig í gildruna kemur hans innra eðli í ljós.

Einn daginn tekurðu eftir því að skítugir táfýlusokkar prosksins liggja á stofugólfinu. Þann næsta tekur hann yfir völdin yfir sjónvarpsfjarstýringunni og hækkar í iPodinum sínum og þykist ekki heyra í þér þegar þú biður hann um að fara út með ruslið. Það kemur þó fyrir að bóli á prinslegum eiginleikum í fari prosksins á borð við að elda rómantíska máltíð handa skvísunni sinni. Eftir máltíðina fleygir hann sér hins vegar upp í sófa, kveikir á sjónvarpinu og liggur á meltunni meðan þú neyðist til að ganga frá skítugum pottum, pönnum og leirtaui í eldhúsinu.


Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?


Í öðrum fréttum langar mig að óska pabba mínum til hamingju með afmælið í dag, þó ég efist um að hann lesi þessa síðu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...