Fara í aðalinnihald

Engin helgarflétta


Hálfur mánuður í sumarfrí og ég er farinn að telja niður, geri fastlega ráð fyrir að þá farið að rigna.

Ætluðum eiginega í útilegu um helgina en vorum svo ekki stemmd fyrir það og í staðinn þá áttum við yndislega helgi í rólegheitum heima hjá okkur og í göngutúrúm um nágrennið þar sem við rákumst meðal annars á þetta (sjá mynd) . Sem sagt gerðum bókstaflega ekki neitt og það var gaman.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ Lilja mín. Veistu við erum búin að kaupa okkur bíl bara í dag. Fórum í Rvk til að skoða en okkur leist vel á Súbarúinn 99 módel keyrður 138 eitthvað mörg núll. Sjálfskiptur.
Takk fyrir síðast það var svo gaman hjá okkur og gaman að sjá hvað Gunnhildur er ánægð með íbúðina sína. Við erum að fara norður vonandi ekki í rigninguna en það eru einhverjar líkur á því. Við förum á nýja bílnum á miðvikudag. Heyrumst og sjáumst Lilja mín og skemmtu þér vel.
Kveðja Magga.
LBK sagði…
Til hamingju með nýja bílinn, hlakka til að sjá hann. Heyrumst vonandi fljótlega og skemmtu þér vel í sumarfríinu.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...