Fara í aðalinnihald

Svefntíminn

Sofnaði tvo daga í röð með einkasyninum þegar ég var að svæfa hann enda glaðvaknaði ég kl. 6.15 í morgun. Hvað gat ég gert annað en að fara á fætur og blögga aðeins. Kennir manni að svæfa barnið ekki í okkar rúmmi. Hann er reyndar voða duglegur að sofna í sínu rúmmi en fær stundum að kúra hjá okkur.
Í gær var hann ekki á því að fara að sofa og kjaftaði af honum hver tuskan. Ég sagði honum að hann ætti að fara að sofa og ekki tala meira og snéri mér frá honum og hann þagnaði. Tíu eða fimmtán mínútum seinna snéri ég mér að honum aftur og þá byrjaði hann strax að kjafta aftur og hann talaði og talaði. Hann sofnaði loksins með mér eins og áður segir.

Jólasveinarnir hafa kíkt til einkasonarins síðustu tvær nætur eins og hjá öllum börnum landsins. Hann er ekki alveg að fatta þetta en samt voða gaman að fylgjast með honum. Jólasveinarnir voru virkilega örlátur þessi tvö skipti og í fyrra skiptið fékk hann litla bók frá Stekkjastaur og seinna skiptið Bubba byggir spólu frá Giljagaur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...