Fara í aðalinnihald

Óhappadagur

Ég get ekki sagt annað en dagurin í dag eða réttara sagt gærdagurinn því klukkan er orðin meira en tólf hafi verið óhappadagur.

Ég átti tíma hjá tannlækni sem eitt og sér gerir daginn frekar óspennandi. Á leiðinni til tannlæknis, NB yfirleitt ekki lengur en 5 mínútur að keyra þangað lenti ég á öllum rauðum ljósum, alls sex, þar af einu gönguljósi. Ég hugsaði með sjálfri mér hvað væri eiginlega í gangi en dreif mig til tannlæknis. Það kom svo í ljós þegar ég labbaði út af tannlæknastofunni og ætlaði inni í bílinn. Þá var sprungið á einu dekki og ég ákvað því að labba frekar heim og bíða þangað til í kvöld til að fá aðstoð frá eiginmanninum þegar hann kæmi heim úr vinnunni.

Í kvöld var ég svo á leiðinni í grillpartý með vinnufélögunum og ákvað að dressa mig upp og fara í pils, aldrei þessu vant. Jæja, ég gafst upp á því þegar ég var búinn að eyðileggja einar sokkabuxur og einar leggings og fór bara í buxum og kom rúmlega hálftíma of seint. Grillpartýið gekk sem betur fer áfallalaust fyrir sig en þegar ég var á leiðinni heim stökk svartur köttur fyrir bílinn og ég þurfti næstum að nauðhemla.

Ég vona að þar sé óhappadeginum lokið þar sem ég ætla að njóta hitabylgjunnar botn á morgun, enda í sumarfríi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?