Fara í aðalinnihald

Eurovison

Horft á Eurovison í gær og Eurovison á morgun. Nóg að gera fyrir Eurovisonaðdáendur, erum við það ekki öll inn við beinið. Bara mismunandi hve dugleg við erum að viðukenna það fyrir okkur sjálfum og öðrum. Enda ekki á hverjum degi sem Ísland kemst uppúr milliriðli, það er svo hægt að rífast um það hvernig lagið er. Get ekki sagt að það sé eitt af mínum uppáhalds... ...en hvaða máli skiptir það þegar Eurovisionkvöld er í nánd.

Eurovisonveðmálspottur í vinnunni í dag þar sem hver lagði kr. 300 undir. Ég valdi 13. sætið og tel mig vera nokkuð bjarsýna.

Ótrúlegt hvað YouTube er sniðugt. Ég var að kynna Eurovison fyrir einkasyninum. Að sjálfsögðu kítkum við á frammistöðu íslenska lagsins og einkasonurinn er meira að segja farinn að raula með. Get reyndar ekki sagt að framburðurinn sé skiljanlegur en skv. honum heitir lagið "Disis dalæf". Þegar við höfðum séð íslenska lagið tvisvar sinnum kíktum við á nokkra gamla sigurvega eins og Ruslönu.

Það er ekki hægt að segja annað en það sé Eurovisonstuð í Hólmanum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Mikilvægasta heimilistækið

Við endurnýjuðum mikilvægasta heimilistækið í dag eftir miklar vangaveltur um hvort það borgaði sig því okkur fannst það heldur dýrt. Hinsvegar ef maður skoðar tölfræðina og kr/notkun þá mætti segja að þetta heimilistæki sé alveg peningana virði. Á þessu heimili er þetta heimilistæki notað daglega. Gamla útgáfan var orðinn úr sér gengin eftir margra ára notkun og misgóða meðferð. Allir fjölskyldumeðlimir nota þetta heimilistæki og það er stöðug barátta um yfirráð á því og eins og algengt er, vinnur oftast sá frekasti. Spurning dagsins er því, hvaða heimilistæki er hér verið að lýsa? Ég þreytist seint á að segja sögur af einkasyninum og í dag fór hann með okkur að velja heimilistækið. Í búðinni rakst hann á ísskáp og opnaði hann og sagði svo "enginn matur" og hrissti hausinn og fannst lítið varið þannig ísskáp.