Fara í aðalinnihald

Pestabæli

Eiginmaðurinn var búinn að vera veikur með hita og beinverki í þrjá daga, hann sem verður aldrei veikur. Í gær, föstudag fór hann aftur í vinnuna en þá þurfti ég að fara heim úr vinnunni eftir að hafa verið þar í klukkutíma og meirihlutann að tefla við páfann. Lá svo heima nánast sofandi allan daginn á milli þess sem ég telfdi við páfann og kastaði upp. Einkasonurinn var samt hin hressasti en þegar hann var sofnaður í gærkvöldi NB í okkar rúmmi tókst honum að kasta upp yfir allt rúmmið. Ó, já það er sko ekki þorandi að heimsækja okkur þessa dagana.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vonandi fer ykkur að batna fljótlega, veit ekki leiðinlegra en að eyða helgum í veikindi :o
sendum sterkar batakveðjur héðan úr West town
IS
LBK sagði…
Takk kærlega fyrir batnaðarkveðjurnar, er að skríða saman, tókst smá að gera eitthvað annað í dag enda hundleiðinlegt að eyða helgunum í veikindi, ætti bara að vera bannað.
Nafnlaus sagði…
nkl ég segi það sama, það ætti að vera þannig að ef maður er lasinn yfir helgi þá seinkar helginni þannig að maður eigi ALLTAF helgi
hahahahah
IS

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...