Fara í aðalinnihald

Tíminn flýgur

Það hrjáir mig blöggleti en það er svo sem allt í lagi þar sem ég blögga nú bara þegar ég er í stuði til þess eins og síðustu ár sýna, hef verið langduglegust á þessu ári. Hinsvegar finnst mér ótrúlegt að það sé komið haust, er eiginlega ekki kominn í haustgírinn. Ætli ég sé ekki alltaf að bíða eftir sumarfríinu sem fór nú fyrir ofan garð og neðan þetta sumarið. Jæja, ég fæ smá sumaruppbót í nóvember.

Það er þó nokkuð ljóst að það er komið haust, brjálað að gera í vinnunni, eins og líklega alltaf en einhvern veginn verður pressan meiri á haustin og ég er rétt að fatta það núna. Einkasonurinn er ekki orðinn þriggja ára en samt er prógrammið að fyllast hjá honum; íþróttaskóli á miðvikudögum og sundámskeið á fimmtudögum. Og svo er orðið dimmt klukkan níu, já það er komið haust og mér finnst það frekar notalegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Það er úti veður vont

Ekki var það nú skemmtilegt veður í dag, en ég er alltaf svo bjartsýn að ég er viss um að það sé að koma vor. Jæja, það kemur a.m.k. að lokum. Ég fór út í göngutúr í dag með einkasyninum og það lá við að við urðum úti. Endaði með því að ég varð að hringja í eiginmanninn og biðja hann um að koma að sækja okkur. Einkasonurinn var nú í góðum málum, í flíspeysu og buxum, stígvélum og pollagalla en ég hafði ekki haft vit á því að fara í pollabuxur og var orðinn hundblaut á rassinum. Aðstæður voru nú þannig að við vorum með vindinn í bakið mest alla leiðina en við (þ.e.a.s. ég) nenntum ekki að snúa við og hafa þá vindinn og þar með rigninguna framan í okkur á leiðinni til baka þannig að heitur bíll var einhvernveginn mikilu meira freistandi. Þó svo að maður eigi bara að skilja símann eftir í göngutúr og njóta náttúrunnar þá var ég feginn að hafa tekið gemsann með í þetta skiptið.