Fara í aðalinnihald

Föstudagurinn langi

Jæja þá er föstudagurinn langi runinn upp og ég er nú ekki að standa mig í blögginu. Þar sem þessi dagur hefur alltaf verið svo langur í minningunni, sérstaklega þegar maður var lítill og mátti ekki gera neitt þá ákvað ég að eyða hluta úr deginum við að gera svolítið sem ég hef ekki gert lengi, nefnilega skrifa hér á þessa síðu.

Fór í bíó í gær með Sigurborgu frænku, við fórum að sjá Taking Lifes sem var ágætis skemmtun. Annars lítur út fyrir að þessir páskar verði afslöppun og aftur afslöppun. Svaf frá kl. 17.30 til 19.15 í gær og á miðvikudaginn frá kl. 17 til kl. 21. Er greinilega að vinna upp svefn þessa dagana.
Við fórum reyndar í sund í gær en það fór alveg með okkur og endaði með því að við gerðum lítið meira þann daginn. Ekki erum við búin að vera duglegri í dag.

Við erum reyndar boði í fisk hjá mömmu og pabba í hádeginu í dag og svo í kvöld ætlum við Sigurborg að kíkja til hennar Huldu frænku. Jæja, best að leggja sig áður en maður fer í hádegismat.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...