Fara í aðalinnihald

Busy woman

Ég er sko búin að vera dugleg stelpa síðustu dagana. Á þriðjudaginn fór ég í göngutúr með Sigurborgu frænku en það kom grenjandi rigning á okkur og þar sem við vorum eiginlega ekki klæddar fyrir rigningu, þá drifum við okkur bara heim til Sigurborgar og spiluðum Scabble.

Í gærkvöldi fór ég svo á kaffihús með Rakel vinkonu minni. Hún er nýbúin að kaupa sér bíl, Nissan Micra 2000 og voða ánægð með það. Hún sótti mig auðvitað á nýja bílnum og við rúntuðum aðeins niður Laugarveginn áður en að við skelltum okkur á Kaffi París. Ég fékk mér meira að segja ristaða samloku með pepperoni þar sem ég hafði ekki fengið mér neinn kvöldmat. Þetta var hin besta skemmtun en núna held ég bara að ég verði heima í kvöld. Er ekki vön því að vera svona dugleg kvöld eftir kvöld, tja það er svona að vera kominn yfir þrítugt.

Á morgun ætla ég að taka mér sumarfrí í vinnunni þar sem það hefur verið svo lítið um frí að undarförnu (eða þannig, heheheh). Ég vinn því aðeins þrjá daga í þessari viku. Frekar næs!!! Ég ætla bara að útrétta aðeins og leika mér, það sem við sem vinnum frá 8-16 getum aldrei gert nema um helgar. Hef ekki tekið mér sumarfrísdag í næstum því eitt ár og því kominn tími til með hækkandi sól.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?