Fara í aðalinnihald

Tryggingar

Við fengum okkur átta milljón króna líftryggingu og sex milljón króna sjúkdómatryggingu í gær sem kostar okkur um 55 þúsund krónur á ári. Finnst alltaf jafn sorglegt að borga tryggingar, sérstaklega þegar maður getur eiginlega aldrei notað þær þegar á reynir, alltaf eitthvað smáaletur sem allt í einu kemur í ljós þegar maður þarf að nota tryggingarnar. Reyndar eru þetta tryggingar sem mig langar ekkert að láta reyna á og er mjög sátt ef ég þarf ekki að nota hana.

Við fengum heimsókn frá tryggingarmanni sem tókst að selja okkur þessa tryggingar. Reyndar búið að vera á dagskrá frá því Kristófer fæddist og byrjuðum að skoða okkur um í sumar en einhvern veginn gáfum við okkur aldrei tíma til að klára málið, en það er sem sagt í höfn núna.

Kristófer Óli var alls ekki sáttur við að fá ókunnan tryggingamann inn á heimili sitt og vildi ekki vera í sama herbergi og hann, rak bara upp öskur um leið og hann sá manninn. Við þurftum því að skipta okkur að hugsa um Kristófer Óla og tala við tryggingamanninn.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?