Fara í aðalinnihald
Taka tvö
Ég ætla greinilega ekki að taka þetta með trompi enda nóg annað að gera. Núna ætla ég að reyna að byrja aftur eða bara byrja á að blögga.

Nágrannarnir voru með partý í nótt þannig að maður fékk ekki fullan svefn. Það er nú heldur betur leiðinlegt að vera með svona ruglaða nágranna. Gætu nú verið verri en gætu líka verið betri. Ég vaknaði kl. 04.00 í nótt og sofnaði ekki aftur fyrr en rúmlega klukkutíma seinna með eyrnatappa og koddan yfir hausnum. Þá dreymdi mig að ég hefði ráðist inn í íbúðina fyrir ofan og tekið öll kasettutækin úr sambandi og lamið nágrannan í klessu. Talandi um mikilmennskubrjálæði.

Siggi þurfti svo að fara að vinna í dag þannig að ég keyrði hann í vinnuna og fór svo og sótti Rakel og við drifum okkur í leikfimi á laugardagsmorgni kl. 10.00. Við fórum í SALSA tíma í Baðhúsinu sem var mjög skemmtilegt og manni líður sko vel á eftir. Öll helgin framundan og maður búinn að fara í leikfimi.

Ég fór svo bara heim og dreif mig í Bónus og svo fór ég í glerbúðina og keypti eina rauðvínsflösku handa Lauga frænda en hann heldur víst uppá 55 ára afmælið sitt í kvöld og við Siggi ætlum að kíkja þar aðeins við. Skemmtilegra að koma með eitthvað með sér.

Jæja, þetta er ágætur fyrsti dagur enda hefur ekkert voðalega mikið meira gerst í dag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...