Fara í aðalinnihald
Karma
Jæja ég labbaði bara heim í góða veðrinu í gær og tók nokkrar myndir sem hægt er að sjá á heimasíðu okkar hjónanna seinna í kvöld þegar að ég nenni að setja þær inn. Svo þegar að ég var alveg að komast heim þá fattaði ég að ég hafði barasta gleymt veskinu mínu í vinnunni en ég beið bara eftir að Siggi kæmi heim og þá brunuðum við aftur í vinnuna og sóttum veskið.

Í gærkvöldi þá settist ég fyrir framan tölvuna og skrifaði lista yfir þær jólgjafir sem ég er búin að kaupa og þær sem ég á eftir að kaupa. Já mörgum finnst ég örugglega hálf rugluð að vera með þetta svona skipulagt og skjalfest en það hentar mér bara lang best. Ég er eiginlega búin að kaupa allar jólagjafirnar og þær sem ég á eftir að kaup er ég eiginlega búin að ákveða hvað verður. Í desember þarf ég ekkert að hafa áhyggjur af jólagjafakaupum og get bara haft það gott með smá "julehygge" eins og danskurinn segir.

Annars var mér einnig boðið starf í fyrradag en neitaði því þar sem ég vildi ekki fara á sjóinn í 4 vikur jafnvel oft á ári!!! Var reyndar með nokkuð samviskubit yfir því að neita þessu og hálf hrædd um að ég fengi ekkert annað starf, og þá yrði þetta svona "Bad Karma" eins og þeir segja í bíómyndunum en ég gat bara ekki hugsað mér að vera í einhverju sjómannslífi og svo voru launin ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þetta er reyndar eina starfið sem mér hefur litist á og hef sótt um hingað til!!! Kannski ekki alveg nógu gott það og ég hætti í þessari vinnu núna um áramótin. Ég ætla allavega að vera í fríi á morgun og þá er aldrei að vita nema að maður fari og sæki um einhver störf.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...