Fara í aðalinnihald

Páskafríið búið

Alvara lífsins tekur aftur við, vinna á morgun. 

Hvað gerði ég svo í páskafríinu?

Á skírdag löguðum við til í íbúðinni, held að það hafi ekki verið þrifði svona vel síðan á jólunum og fengum síðan gesti í mat. 
Föstudagurinn langi var langur. Við fórum í sund snemma um morguninn og svo seinni partinn fórum við í bíltúr. 
Laugardagurinn var reyndar lengri en föstudagurinn langi þar sem ég vakti í 20 tíma. Hann byrjaði með því að ég vaknaði um kl. 5 og gat ekki sofnað aftur þannig að ég fór bara á fætur. Bakaði snúða, byrjaði að prjóna "búkinn" á lopapeysuna sem ég er að gera fyrir eiginmanninn og svo drifum við okkur í fjöruferð sem endaði snögglega sökum kulda og í staðinn drifum við okkur í heimsókn. Um kvöldið hitti ég svo tvær vinkonur mínar. 
Páskasunnudagurinn byrjaði á því að við opnuðum öll páskaeggin okkar og það voru meira að segja tveir málshættir inni í páskaeggi einkasonarins, svo fórum við í tvö matarboð og Kristófer Óli æfði sig að hjóla. 
Í dag var Kristófer Óli nánast allan daginn að leika sér við vin sinn en við gömlu hjónin höfðum það gott hérna heima og ég hélt áfram að prjóna. Seinni partinn fórum við smá rúnt í Heiðmörk og kíktum m.a. á Rauðhólana. Loks fórum við í langþráða bíóferð með einkasoninn þar sem við sáum skrímsli og geimverur slást í þrívídd. 
Sem sagt nóg að gera um páskana og ætli það sé ekki tími til kominn að fara að sofa, enda vinna á morgun. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
úff ég veit varla hvort páskafríið var frí... brokkólí og blómkál var mér svo ofarlega í huga.....

Samyrkjbóndi

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...