Fara í aðalinnihald

Bílar og sumar

Sumardagurinn fyrsti kominn og farinn. Því miður varð lítið úr sumardeginum fyrsta sem ég eyddi reyndar að mestu inni sökum magakveisu. Hún fór sem betur fer fljótlega aftur þannig að ég gat tekið gleði mína á ný. Gleðilegt sumar. 

Lítið hefur gerst síðustu daga og er ein helsta ástæða þess að bílinn okkar gamli og góði, rauða eldingin tók uppá því að bila eina ferðina enn. Hann er nú kominn til ára sinna, tja reyndar aðeins 11 ára gamall en búið að keyra hann 210.000 km þannig að hann er nú búinn að þjóna sínu. Hann er sem sagt búinn að vera bilaður síðan á miðvikudaginn í síðustu viku og við fengum hann loksins í dag eftir að hafa dregið hann á verkstæði fyrir helgi. Ótrúlegt hvað maður er háður bílnum og ég var nú feginn að sjá gamla vin minn aftur. Hins vegar prófaði maður ýmislegt nýtt þegar bílinn var á verkstæði eins og að taka strætó heim úr vinnunni. Ég verð að segja að ég sá að maður verður að vera duglegri að skilja bílinn eftir heima og labba, hjóla eða taka strætó. Það ætla ég að gera í sumar. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...