Fara í aðalinnihald

Sundlaug Kópavogs

Sundlaug Kópavogs er sundlaugin mín. Allt frá því ég var lítil stelpa og fór í sund í pinku lítilli sundlaug og fékk mér hálft fransbrauð á eftir í bakaríinu á móti eða labbaði í sund á menntaskólaárunum á meðan ég bjó hjá ömmu minni eða þegar ég gerði mér ferð í Kópavoginn á þeim tíma sem ég bjó í höfuðborginni. Ég á góðar minningar um þessa sundlaug og hef alltaf verið nokkuð heimakominn þar.

Ég hef ekki farið mikið í þessa sundlaug hin síðustu ár, kannski dofnaði sjarminn, eða ég var kannski bara að gera eitthvað annað! Fyrr í vetur fór ég svo nokkrum sinnum aftur í þessa sundlaug en tókst kannski ekki að standa við stóru orðin, þ.e. fara í sund 1x í viku í vetur. Ég stend þó við það að þetta er lang besta laugin fyrir sundæfingar.

Fyrir stuttu var Sundlaug Kópavogs svo opnuð enn og aftur með hátíðarhöldum, endurbætt með nýjum pottum, innisundlaug og nýjum klefum í stað "bráðabirgðaklefanna" sem stóðu í 15 eða 20 ár. Ég og einkasonurinn fórum og vígðum nýja hlutann í dag eftir vinnu. Það var alveg frábært og við himinlifandi með nýju vaðlaugina sem er inni, nýju barnapottana og aðra heita potta, auk stærri klefa. Sturtunar voru kannski minnst spennandi, hefðu mátt vera fleiri en maður getur svo sem ekki fengið allt. Við munum örugglega verða fastagestir þarna í sumar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Þrjú ár

Í dag eru þrjú ár síðan ég átti einkasoninn, já ótrúlega fljótt að líða. Að sjálfsögðu er ég eins og flestar mæður og segi það hiklaust að þetta sé stærsta upplifun lífsins og besta og mesta afrek sem ég hef gert. Á þessum tíma fyrir þremur árum var ég búin að vera með hríðir í rúmlega sólahring og búið að sprengja belginn, komin með dripp í æð og ljósmóðirin sem var að fara að vakt var hálf svekkt yfir því að þurfa að fara þar sem hún var viss um að barnið væri að koma. Hann leit dagsins ljós sex tímum seinna.

Níu dagar

Það eru níu dagar þangað til að ég fer til Florida og ég er sko fyrir löngu byrjuð að telja niður. Það verður ágætt að yfirgefa þetta verður og fara í sólina í Orlando, Florida. Ég get ekki beðið...

Besti dagur vikunnar?

Lifið er að komast í fastar skorður eftir árshátíðaræsing síðustu viku. Búinn að margþakka vini mínum fyrir góðar gjafir sem var reyndar karlmaður eins og mig grunaði. Ótrúlegt hvað maður er alltaf þreyttur á miðvikudögum. Er samt kominn að þeirri niðurstöðu að miðvikudagar séu bestu dagar vikunnar, sérstaklega miðvikudagskvöld. Þá er farið að syttast í helgi en samt á maður alveg föstudagskvöld eftir sem eru líka nokkuð þægileg. Reyndar er kl. 15.30 á föstudögum líka fínn tími, hálftími í helgi. Já, svo eru helgarnar líka skemmtilegar. Tja ætli að hver dagur, hver klukkutími og jafnvel hver mínútu sé á vissan hátt besti tími vikunnar, fer bara eftir því hvernig maður lítur á það. Hver er uppáhalds dagurinn ykkar?